152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.

[16:06]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að fjarlækningar og ráðgjöf í gegnum netið sé kærkomin viðbót við heilbrigðiskerfið sem fyrir er en þó engan veginn til að koma í staðinn fyrir þá læknisþjónustu sem við höfum búið að í gegnum tíðina og viljum búa við áfram. Þetta á við um sálfræðiaðstoð eða geðlæknisaðstoð eða ráðgjöf. Við þurfum að tryggja öllum Íslendingum, hvar sem þeir búa á landinu, aðgengi að læknum og þá ekki bara í gegnum símaskilaboð eða netskilaboð en þróunin er því miður að fara í þá átt. Maður fær ekki að tala við gamla heimilislækninn sinn eins og maður gerði hér árum og áratugum saman. Maður þarf að senda honum einhvers konar skilaboð í gegnum Heilsuveru og hann hringir ekki í dag, hann hringir ekki á morgun, hann hringir eftir tvo daga og þá er það kannski of seint.

Ég er þeirrar skoðunar að ákveðin afturför hafi átt sér stað í því að ekki sé sjálfsagt að geta hitt lækninn sinn sem hefur vonandi þróað — eins og í tilfelli míns heimilislæknis sem hreinlega bjargaði lífi mínu með því að vera með eðlisávísun og segja hreint út: Ég treysti ekki bráðadeild Borgarspítalans. Komdu hingað beint og komdu í skimun strax. Ég var á leið til útlanda. Hefði ekki þessi eðlisávísun, uppbyggð í gegnum tíðina, verið til staðar þá væri ég ekki hér í dag. Svo einfalt er það.

Það kemur ekkert í staðinn fyrir góðan heimilislækni sem hefur kynnst þér og verið með þér í gegnum tíðina. Þess vegna segi ég: Gætum okkar á því að tæknin er ágæt svo langt sem hún nær en hún kemur aldrei í staðinn fyrir mannlega þáttinn. Mönnunarvanda íslenskra sjúkrahúsa og læknis- og heilbrigðisstofnana þarf að laga, ef ekki með íslensku starfsfólki þá með erlendu. Það er nóg framboð.