staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Frú forseti. Við búum við heilbrigðiskerfi sem er að riða til falls vegna þess að það er enn byggt upp á sama máta og var þegar ég fæddist, sem börnin mín segja að hafi verið á tíma risaeðlanna. Við höfum ekki verið nógu dugleg að hugsa upp nýjar leiðir og nýjar aðferðir til að leysa álagið sem er á kerfinu. Þau okkar sem búa á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu áttum okkur ekki oft á því hversu erfitt er fyrir fólk sem býr úti á landi að fá aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu, svo ekki sé talað um aðgengi að sérfræðingum. Það var ótrúleg framför þegar hægt var að biðja um endurnýjun á lyfseðli í gegnum netið eða bóka tíma hjá heimilislækni eftir þrjá mánuði, en það voru bara einföldu lausnirnar sem auðvelt var að útfæra. Við tókum einnig örstutt skref, eins og hæstv. ráðherra benti á, þegar kom að því að fylgjast með Covid-sjúklingum í gegnum netið undanfarin tvö ár. En við getum tekið mun fleiri skref í átt að því að bæta eftirlit og þjónustu við fólk sem glímir við ýmis veikindi. Við erum farin að sjá sérfræðinga nýta sér tækni eins og Kara Connect til þess að veita þjónustu yfir netið. Þar eru fjölmörg sóknartækifæri, t.d. á sviði geðheilbrigðisþjónustu, en einnig má finna leiðir til að nýta fjarheilbrigðistæknina á mun fleiri sviðum. Þar þurfum við að passa að úrelt gömul vinnubrögð og reglur séu ekki að stoppa okkur í því að nýta okkur þessa tækni. Mikilvægt er að heilbrigðisráðuneytið ráðist í sérstaka vinnu við að opna fyrir notkun, prófanir og þróun á ýmissi fjarheilbrigðisþjónustu og einfaldi frumkvöðlum á þessu sviði að fá aðgengi að íslensku heilbrigðiskerfi, að sjálfsögðu á þann hátt að aðgengi að persónu- og heilsufarsupplýsingum sé tryggt.