staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Forseti. Ég þakka þessa góðu umræðu. Grunnurinn að þessari mikilvægu umræðu hér er að finna nýjar lausnir, fyrst og fremst til að finna notendavænni þjónustu fyrir fólk, en einnig er um að ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir framtíðina þar sem við erum í þeirri ánægjulegu stöðu að þjóðin okkar er að eldast. Við lifum lengur og erum heilbrigðari lengur, en það kallar á nýja nálgun svo við getum staðið skammlaust undir þeirri þjónustu sem við viljum svo gjarnan veita í þágu allra þeirra sem þess þurfa.
Á síðasta kjörtímabili var sett fjármagn í að stuðla að auknum tæknilausnum og nýsköpun í heilbrigðiskerfinu. Slíkur fókus fær einnig stað í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og nýsköpunarráðherra hefur lýst yfir miklum metnaði og áhuga á að í ráðuneyti hennar verði komið á skilvirku samstarfsumhverfi sprotafyrirtækja og stofnana á sviði heilbrigðisþjónustu.
En til að svo megi verða, forseti, er lykilatriði að opinberu kerfin okkar opni fyrir slíkar nálganir en séu ekki þróuð einhvers staðar úti í samfélaginu sem fá síðan ekki hljómgrunn í innviðum hins opinbera. Í því ljósi bárust vondar fréttir á dögunum þegar í ljós kom að innkaup landlæknis á þróun heilbrigðisnets, Heilsuveru og fjarfundalausna á heilbrigðissviði, hafi verið ólögmæt og í andstöðu við lög um opinber innkaup. Í þessu tilfelli er um að ræða inngrip í samkeppni á sviði nýsköpunar sem hefur gríðarlega neikvæð áhrif á nýsköpunarumhverfið.
Forseti. Í ljósi þessara frétta vona ég og treysti að hæstv. ráðherra verði vakandi fyrir því að aðilar og stofnanir sem undir hann heyra falli ekki í þá gryfju vanans að það þurfi ekki að passa mikið upp á mikilvægar nýjungar og samkeppni annarra aðila, að áherslan verði þvert á móti lögð á að móta vettvang og umhverfi sem gefi frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum kost á að kynna lausnir sínar og að til staðar verði faglegt kerfi fyrir kynningu, mat og innleiðingu nýrra lausna.