staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Forseti. Ég tel að það þurfi meiri nýsköpun í kerfið, utan kerfis að sjálfsögðu, en líka innan kerfisins, að það sé tækifæri til þess að reyna og prófa nýja hluti, að grípa tækifærin í tækniþróun á lofti og hlaupa áfram með þau. Ég tek þannig svona hálft í hvoru undir með því sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir sagði hérna áðan, en vandinn í því dæmi sem verið er að lýsa er eignarhaldið, að þegar hið opinbera kaupir einhverjar lausnir, fjarheilbrigðislausnir, ýmislegt svoleiðis, af einkaaðilum verður að passa upp að verið sé að kaupa eitthvað sem hið opinbera á síðan þannig að við læsumst ekki inni í einhverjum spenum fram og til baka og þegar lausnin úreldist eða það þarf að bæta við eða eitthvað svoleiðis þá kosti það ekki formúu að breyta og bæta, eins og ítrekað hefur gerst í umsjón hins opinbera á undanförnum árum. En jafnframt því þarf að grípa tækifærin, við þurfum að geta gripið tækifærin þegar þau gefast. Þá þurfum við líka að huga að staðbundna netinu okkar. Fjarheilbrigðisþjónusta er tæki, það er viðbótartæki, það er ekki gullna lausnin við öllum okkar vandamálum. Við þurfum líka að huga að því að við erum með ákveðinn flöskuháls í heilbrigðiskerfinu hérna á höfuðborgarsvæðinu. Það er þörf til að koma hingað varðandi allt of margt. Og við vitum alveg með veðurfarið og ýmislegt svoleiðis að það getur verið erfitt þegar það er flöskuháls. Við þurfum að huga dreifingunni. Ég myndi vilja hafa góða yfirsýn, gott skipulag um það hvernig dreifing á heilbrigðisþjónustu milli hinna ýmsu íbúasvæða á að vera, hvernig hún væri góð, hvernig hún væri fullkomin, og svo myndum við reyna að vinna saman að einhverri áætlun til að komast þangað.