staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svör og þeim sem hér hafa tekið þátt í umræðunni. Þetta er afar mikilvægt verkefni sem við erum hér með í höndunum og ástæða til þess einmitt að reyna að fá einhverja yfirsýn yfir það. Við erum með þjónustukort hjá Byggðastofnun sem sýnir okkur hvar tiltekna þjónustu er að hafa. Það er auðvitað ekki fullkomið en sannarlega eitthvað til að byggja á. Eins og hæstv. ráðherra sagði eru ýmis leiðarljós sem eru hér til staðar sem kosta tíma og kosta fjármuni en auðvitað er mjög mikilvægt að spara krónuna og fara vel með fjármuni í þessu kerfi okkar, sem við erum alltaf að reyna, og nýta þá. Ég held að það sé almennt, ef við getum sagt sem svo, framtíðarsparnaður fólginn í því að búa til þessa fjarheilbrigðisþjónustu og búa vel um hana sem víðast, í hinum dreifðu byggðum sérstaklega. Eins og hér var komið inn á er sannarlega þörf fyrir hana í þéttbýlinu líka.
Austurland er í fararbroddi í notkun stafrænna lausna. Það er nýleg norræn rannsókn sem talar um það og þar er komið inn á að reynslan geti orðið öðrum dreifbýlissvæðum á norðurslóðum fordæmi. Það sýnir að við erum að standa okkur ágætlega þrátt fyrir allt. Um leið vil ég líka árétta að við vitum öll af mönnunarvandanum sem til staðar er núna fram undan, í náinni framtíð, en það er gríðarlega mikilvægt að geta verið með — við vorum t.d. með hjúkrunarfræðing á Borgarfirði eystra sem var að vinna ákveðið í fjarvinnu líka, þ.e. í fjarheilbrigðisþjónustu líka, og nýttist þar af leiðandi auðvitað þó að samfélagið þar sem viðkomandi var væri afskaplega smátt og þyrfti ekki alla starfskraftana.
Þannig að ég bara hvet hæstv. ráðherra til dáða í þessu. Ég vil líka minna á og þakka fyrir það sem gert var (Forseti hringir.) þegar var verið að útfæra samninginn við Ljósið sem gerði fólki úti á landi auðveldara að sækja sér þjónustu og þeirra aðstandendum. (Forseti hringir.) Allt þetta skiptir gríðarlega miklu máli.