staða, horfur og þróun í fjarheilbrigðisþjónustu.
Hæstv. forseti. Ég vil ítreka þakkir fyrir þessa þörfu og góðu umræðu. Eins og gjarnan er þá kemst maður ekki yfir helminginn af því sem maður vildi koma inn á hér, þetta þróast yfirleitt þannig, og það væri gott að geta brugðist við þeim góðu ábendingum sem hafa komið í fjölmörgum mjög góðum ræðum hér. Ég á eftir að svara þremur spurningum frá hv. málshefjanda, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, um símenntun og endurmenntun og stefnumörkun og í hvaða greinum þetta getur helst gagnast okkur. En mig langar aðeins að taka þetta í samhengi því að í minni fyrri ræðu kom ég inn á þessa veggi sem blasa við mér. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir kom inn á verkefni á þessu sviði tengt sykursýki, sem ég hef auðvitað ekki haft tækifæri til að leggja sjálfstætt mat á. Þetta er gríðarlega stórt verkefni og umfangsmikið. Það er ekki þannig að því hafi verið hafnað í ráðuneytinu, hins vegar er ráðuneytið ekki með þannig fjármögnunarstyrki að það geti tekið utan um þetta verkefni öðruvísi en að fanga verkefnið og fara yfir það og gefa því stuðning. Það eru litlir nýsköpunarstyrkir sem eru veittir í heilbrigðisráðuneytinu. En þetta minnir á það að ég var framsögumaður þingsályktunartillögu um opinbera klasastefnu sem snýr að vistkerfi nýsköpunar. Það er verkfæri sem nýsköpunarráðherra á að nýta sér. Það er verkfæri sem brýtur niður þessa múra og skapar tengin til að stinga í samband, akkúrat fyrir svona verkefni. Þetta eru veggirnir, múrarnir sem við verðum að brjóta niður. Það kom fram hér að við getum aldrei skipt fjarheilbrigðisþjónustu út fyrir þennan mannlega þátt og þekkinguna. En við getum sannarlega nýtt þessa takmörkuðu auðlind sem felst í starfsfólkinu okkar betur með notkun fjarheilbrigðisþjónustu.