152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:33]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað orðið mjög þreytt að þurfa endurtekið að koma upp til að ítreka spurningar til hæstv. forseta vegna þess að hann svarar ekki þeim spurningum sem að honum er beint undir liðnum um fundarstjórn forseta. Við þurfum að koma aftur upp til að óska eftir því. Þetta hef ég þurft að gera og þetta þurfum við að gera reglulega vegna þess að forseti bregst ekki við mjög réttmætum og sanngjörnum spurningum hv. þingmanna um hvað hann ætli að gera til að standa vörð um þingið. Hann hefur engin svör, þessi hæstv. forseti sem á að heita forseti alls þingsins. Svarar ekki stjórnarandstöðuþingmönnum þegar þau koma ítrekað upp í fundarstjórn forseta. Það leið langur tími frá því að við óskuðum eftir þessu lögfræðiáliti þangað til að það kom og nú er það loksins komið og enn bólar ekkert á neinum viðbrögðum af hálfu forseta. Það eina sem við heyrum er að hann ætli að fylgjast með þróun mála. Þetta er ekki boðlegt, virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir því að hæstv. forseti beiti sér með skýrari hætti fyrir hönd þingsins.