152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:34]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég tek undir það sem fram hefur komið hér hjá hv. þingmönnum. Eftir allan þennan langa leiðangur sem orðið hefur vegna þeirra gagna sem undirstofnun hæstv. dómsmálaráðherra hefur neitað að afhenda, í þökk hæstv. ráðherra, og eftir allan þann langa tíma sem liðinn er frá því að kallað var eftir inngripi forseta og nú þegar skýrt lögfræðiálit, sem má ætla að forseta hafi verið kunnugt um löngu áður, liggur loksins fyrir þá hljótum við að kalla eftir skýrum viðbrögðum hæstv. forseta. Hvað hyggst hann gera til að knýja á um að þingið geti starfað samkvæmt lögum? Ég held að það sé ekki til of mikils mælst að forseti stígi með kröftugum hætti inn í þetta klúður sem við höfum verið að horfa á í mánuð eða svo.