um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég hef komið áður hingað upp í fundarstjórn og viðrað þær sömu skoðanir og ég er að fara að viðra núna. Ég er á engan hátt að gera lítið úr þessu tiltekna máli sem hv. þingmenn margir hafa haldið vel á lofti og við erum mörg sem stöndum í þakkarskuld vegna þess, en mig langar eiginlega að útvíkka þetta vegna þess að fyrir utan þetta tiltekna efnisatriði sem varðar mjög viðkvæma einstaklinga og bara það hvernig við viljum sem samfélag taka á móti þeim, þá snýst þetta líka um getu þingsins til að sinna starfi sínu. Það er hægt að heimfæra þær aðstæður sem nú eru uppi upp á aðrar — einn fulltrúi framkvæmdarvaldsins spyrnir við fótum og segir nei þrátt fyrir lög og þrátt fyrir vilja Alþingis og við erum föst þar — og ég velti því fyrir mér: Hvað ef um væri að ræða hápólitískt mál? Hvað ef um væri að ræða mál sem varðaði stórkostlega hagsmuni jafnvel fleiri einstaklinga en hér eru undir og mikla fjármuni sem skipta sköpum? Hvað gerum við? (Forseti hringir.) Hver eru næstu úrræði sem við höfum? Mér þykir þetta mjög mikilvæg spurning og ég held að við verðum að gefa okkur tíma til að fara yfir þetta.