152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:37]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég hef líkt og margir aðrir í þessum sal fylgst með vaxandi forundran með því máli sem hér er verið að ræða undir fundarstjórn. Nú liggur fyrir að hæstv. dómsmálaráðherra hefur brotið lög. Fyrir liggur að lagaskrifstofa Alþingis metur það með þeim hætti. Gögn sem átti að afhenda fyrir löngu síðan hafa ekki verið afhent og hið háa Alþingi er undirselt geðþóttaákvörðunum ráðherra sem enn nýtur stuðnings meiri hluta þingmanna þriggja stjórnarflokka. Ég velti fyrir mér hvort allir hv. þingmenn VG, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu ánægðir með þetta framferði og þessar geðþóttaákvarðanir og hvort fólk hafi almennt íhugað hvaða afleiðingar það hafi fyrir störf þingsins í framhaldinu.