152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:40]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Eins og fram hefur komið var lögfræðiálit lagaskrifstofu Alþingis um gildissvið 51. gr. þingskapalaga mjög skýrt. Það er líka af því að lögin eru mjög skýr. Þetta lá alltaf fyrir. Þetta lá alltaf í augum uppi. Það var meira að segja augljóst þeim okkar hér sem erum ekki einu sinni löglærð. Þetta er bara skrifað á ósköp skýrri íslensku. Upplýsingaréttur nefnda er nógu mikilvægur til að hann sé skrifaður út á skýru máli. Sama er reyndar um skyldur Útlendingastofnunar samkvæmt lögum um ríkisborgararétt. Það þarf enga meistaragráðu í lögum til að átta sig á orðunum „Útlendingastofnun skal kalla eftir umsögn lögreglu“ og „Útlendingastofnun skal gefa Alþingi umsögn um umsóknir um ríkisborgararétt til Alþingis.“ Þetta „skal“ þýðir að þau skulu gera það og svo gera þau það ekki. (Forseti hringir.) Og mér finnst svo skrýtið, frú forseti, að við þingmennirnir sem komum upp (Forseti hringir.) til að standa vörð um virðingu Alþingis tölum allt of oft fyrir daufum eyrum þess sem stýrir dagskránni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)