um fundarstjórn.
Frú forseti. Já, það er slæmt að við skulum þurfa að koma hér síendurtekið upp í ræðustól Alþingis til að biðja hæstv. forseta Alþingis, ekki frú forseta sem situr hér heldur þann er hefur það embætti, um svör, um að verið sé að virða yfir 100 ára hefð til að gera þetta, að veita ríkisborgararétt, og virðingu Alþingis. Nú er komið alveg á hreint að dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun hafa verið að brjóta lög gagnvart Alþingi og það er ekkert svarað fyrir það hér úr forsetastól. Það er bara allt í lagi. Ég spyr (Forseti hringir.) sjálfan mig, eins og hv. þingmaður gerði hér áðan: Hvað ef þetta væri eitthvert annað mál sem snerti kannski hjarta (Forseti hringir.) Sjálfstæðisflokksins aðeins meira? Hvað ef þetta væri um frelsi til vínverslunar eða eitthvað?