152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Já, við höfum margoft talað um þetta ástand, að Útlendingastofnun, með liðsinni eða að áeggjan hæstv. dómsmálaráðherra, hefur neitað að afhenda gögn vegna umsókna um ríkisborgararétt. Einhverra hluta vegna var lagaskrifstofu Alþingis falið að skrifa álit um gildissvið 51. gr. laga um þingsköp Alþingis, um heimild nefnda til að kalla eftir gögnum. Nú skulum við alveg hafa það á hreinu, frú forseti, að 6. gr. laga um ríkisborgararétt segir einfaldlega að Alþingi skuli veita ríkisborgararétt með lögum og áður en umsókn um ríkisborgararétt er lögð fyrir Alþingi skuli Útlendingastofnun fá um hana umsögn lögreglustjóra og skuli Útlendingastofnun gefa umsögn um umsóknina. Þetta er ekki spurning um einhvern vilja. Þetta er ekki spurning um að nefnd eigi rétt á að fá gögn. (Forseti hringir.) Þetta er bara lögbundið. Við erum löggjafinn og við höfum ekki ráðið við að fara að lögum (Forseti hringir.) í fleiri vikur, frá því í desember. Hvaða skrípaleikur er þetta? (Forseti hringir.) Af hverju er ekki forseti strax farinn að sækja þessi gögn?

(Forseti (OH): Nú hyggst forseti beita sér í fundarstjórn forseta og minna hv. þingmann á að virða ræðutíma.)