um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Hvaða staðreyndir höfum við í þessu máli? Jú, lögin eru skýr. Lögin eru alveg skýr; þingið og nefndin eiga rétt á að fá þessi gögn. Lagaskrifstofan hefur líka sent skýr skilaboð: Við eigum að fara að lögum. En lögleysan virðist ráða og það er algerlega á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Hérna fara eiginlega ekki saman hljóð og mynd. Einhvern veginn erum við í þeirri aðstöðu að við erum að senda út þau skilaboð úr ræðustól Alþingis að á Alþingi sé ekki farið að lögum og reglum. Það er auðvitað grafalvarlegt mál. Það hlýtur að vera spurning hvort ríkisstjórnin getur bara yfirleitt setið þegar hún getur ekki einu sinni farið að lögum og reglum.