152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

um fundarstjórn.

[17:00]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í lögfræðiáliti því sem okkur barst í gær kemur ekki eingöngu fram að Útlendingastofnun sé að brjóta lög með því að afhenda okkur ekki gögnin heldur kemur þar fram að gögnin hefði átt að afhenda innan sjö daga frá því að óskað var eftir þeim. Allsherjar- og menntamálanefnd sá hins vegar aumur á Útlendingastofnun þar sem það var möguleiki að þetta væri bara einhver misskilningur vegna þess að ráðherrar sendu eitthvert bréf einhvern tímann í júní sem enginn sá og annað slíkt og gaf Útlendingastofnun því frest til 1. febrúar til að skila umræddum gögnum. Það kom hins vegar mjög fljótt í ljós að þetta snerist ekkert um að þau hefðu ekki tíma til að vinna gögnin heldur fengum við einfaldlega þvert nei, við ætlum ekki að afhenda gögnin, og vísað til þess að 51. gr. þingskapalaga ætti hreinlega ekkert við í málinu.

Mig langar aðeins til að mótmæla því sem kom fram í máli hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson hér rétt áðan um að þetta sé ekki hápólitískt mál. Ég tel þetta nefnilega hápólitískt mál og ég held að það sé ástæðan fyrir því að við erum í þeirri stöðu sem við erum í í dag. (Forseti hringir.) Með því að gera ekkert í þessu er staðan í rauninni orðin sú (Forseti hringir.) að það er búið að kippa úr sambandi þessu ferli. (Forseti hringir.) Hægt og rólega fáum við umsagnirnar sem bárust í október. Hvað verður um umsóknirnar sem koma eftir það? Það veit enginn. Sennilega ekki neitt.