kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni greinargóða yfirferð yfir frumvarpið. Ég tek undir það með henni að það er ankannalegt að við séum svo oft að breyta lögum sem nýlega hafa farið í gegnum heildarendurskoðun og svo stuttu eftir að þau eru samþykkt. Ég vil rifja það upp að þegar þetta var unnið hér fyrir ári, þá sat ég einmitt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, voru gerðar mjög umfangsmiklar breytingar frá því sem lagt var upp með í frumvarpinu. Eftir á að hyggja mögulega umfangsmeiri breytingar en eðlilegt hefði verið í ljósi þess að villurnar má oft rekja til skorts á samlestri. En það voru stórir þættir sem tengjast mekanismanum í framkvæmd kosninga sem var umturnað í meðferð nefndarinnar. Til dæmis var lagt upp með það í frumvarpinu að leggja niður yfirkjörstjórnir en svo voru þær settar inn aftur. Á síðasta degi var tekinn út möguleikinn til póstkosninga en mikið púður hafði farið í það í umfjöllun nefndarinnar; það var ákveðið í þinglokasamningum að koma til móts við Miðflokkinn og klippa þetta út. Það var því ýmislegt sem átti sér stað sem veldur þessu.
Það eru bráðabirgðaákvæði varðandi ákveðna þætti í kosningalögunum og mig langar að spyrja sérstaklega um rafræna kjörskrá sem er atriði sem Reykjavíkurborg benti á að gæti orðið flókið í framkvæmd og þess vegna var valið að það yrði valkvætt hvort sveitarfélögin myndu beita rafrænni kjörskrá við þessar kosningar og síðan yrði reynslan af því metin í framhaldinu. Þetta átti allt að fara í gegnum ráðuneytið og (Forseti hringir.) skýrslur og nefndir og alls konar. Ég spyr hvort þingmaðurinn viti hvar þessi mál standa, hvort búið sé að útbúa einhver drög að rafrænni kjörskrá sem hægt væri að nota í einhverju prufusveitarfélagi.