152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[17:25]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur þessar hugleiðingar. Þær eru mjög mikilvægar. Kosningalögin voru afgreidd hér á hinu háa Alþingi 25. júní 2021, nákvæmlega þrem mánuðum síðar fara alþingiskosningar fram og svo líða tveir langir mánuðir áður en þing tekur til starfa. Í fimm mánuði, eftir setningu þessara laga, var Alþingi ekki að störfum og við sem erum hér inni vitum hvað var að gerast þá mánuði. Ég held að það sé engin spurning að það hafi haft áhrif á starf Stjórnarráðsins að það voru að koma haustkosningar. Við vitum hvernig það er þegar ráðherrar þurfa svolítið að stýra sínum ráðuneytum í aðdraganda kosninga. Þeir reyna að þræta fyrir það en það er nú samt þannig.

Það eru rétt rúmir tveir mánuðir til sveitarstjórnarkosninga, nú er 9. mars og það verður kosið um miðjan maí. Ég hygg að við séum líka að lenda í því hér að ekki aðeins varð þetta langa hlé á þingstörfunum á síðasta ári — síðan tók þing til starfa og hér var afgreitt fjárlagafrumvarp og fleiri dagsetningarmál fyrir áramót og í byrjun janúar — heldur er það ekki síður að gerast núna að samkvæmt ákvörðun meiri hluta þingsins voru gerðar mjög miklar breytingar á Stjórnarráðinu. Það er líka verið að stokka upp í ráðuneytum. Mín tilgáta er sú að það að skriflegum fyrirspurnum þingmanna sé ekki svarað, að verið sé að biðja um frest á því, sé m.a. afleiðing þess að starfsfólk Stjórnarráðsins, sem er að sjálfsögðu allt að reyna að gera sitt besta, er bara á kafi í skipulagsbreytingum. Fyrst kemur langt hlé og síðan eru allir á kafi í skipulagsbreytingum.