kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla yfirferð. Þar sem ég sat í sæti mínu fór ég aðeins yfir það hvernig þetta mál hefur verið, af því að við erum oft að velta fyrir okkur hvernig málum er hraðað í gegnum þingið, að mál koma hér á síðustu stundu o.s.frv. Ég hjó eftir því að þessum lögum hefur nú þegar verið breytt nokkrum sinnum. Þegar ég fór aðeins að skoða hvernig ferillinn hefur verið á þingi tók ég líka eftir því að lögunum var beinlínis breytt, að því er mér sýnist, sama dag og þau voru samþykkt í júní sl. Þingið þurfti svo að koma saman á hásumri í júlí til að gera breytingar á lögum um kosningar til Alþingis af því að láðst hafði að gera einhverjar breytingar á þeim lögum. Svo þurfti aftur að gera breytingar á þessum lögum í desember og nú þetta, þrátt fyrir að þrjár breytingartillögur kæmu þegar þetta mál var til meðferðar á Alþingi, bæði við 2. umr. en líka á milli 2. og 3. umr. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Man hún eftir öðru eins á fyrsta ári tilvistar laga?