152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[17:57]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Við komum í veg fyrir að það verði ákveðið tjón inn í framtíðina með því að stunda betri vinnubrögð á Alþingi, með því að undirbúa mál vel og með því að hleypa öllum að borðinu. Það er líka með ólíkindum hvað stjórnarandstöðunni er alltaf haldið utan við allt og enginn tími gefinn til að skoða málin ofan í kjölinn, eins og við höfum bara ekkert fram að færa, eins og við viljum bara eyðileggja allt sem frá stjórninni kemur og gera ekkert gagn þegar málin komast loks á dagskrá. Skyndifundir til að bjarga málum eru sæmilega algengir hér á Alþingi, að við þurfum að koma saman í sumarhléi vegna þess að eitthvað gleymdist eða út af því að einhver dagsetning var vitlaus eða eitthvað slíkt. Ef þingstörfin væru skipulagðari og rýmri tími væri gefinn fyrir málin held ég að við myndum ekki upplifa svona mikið af mistökum og svona mikið af rugli eins og hv. þingmaður var að lýsa í andsvari sínu. Ef meiri hlutinn kæmi fyrr til stjórnarandstöðunnar til þess að ræða um málin sem hann vill koma í gegn, jafnvel til að semja um mál og ef fleiri mál væru unnin frá upphafi í samstarfi og samráði við minni hlutann held ég að hægt væri að koma í veg fyrir mikið af þessum mistökum og líka koma í veg fyrir það mikla álag sem verður alltaf hér á ákveðnum tímapunktum. Það er alveg hægt að dreifa álaginu miklu jafnara. Það þarf bara lýðræðislegra hugarfar en er ráðandi í ríkisstjórn Íslands í dag, því er nú verr og miður.