kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Við fjöllum hér um frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum og lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka, varðandi viðmiðunardag kjörskrár og fleira. Það er ekki hægt að segja að maður sé efnislega ósammála því sem hér er verið að gera, það er ýmislegt sem þarf að gera þarna, en eins og fram hefur komið er með algjörum ólíkindum að við séum hér enn á ný að breyta kosningalögum með einhverjum krosssaumi í svona mikilvægu máli. Kosningalögin þurfa að vera svolítið „akkúrat“. Þau mega ekki vera á þann hátt að þau þoli mjög matskennda túlkun af því að þetta eru grundvallarréttindi almennings, grundvöllur lýðræðis, að fólk hafi sinn rétt til að ganga til kosninga, hafi sinn rétt til að bjóða sig fram og að jafnræði og gagnsæi og skýrleiki gildi þegar um er að ræða mál af þessu tagi. Þetta er undirstaða lýðræðisins.
Það er eiginlega alveg ótrúlegt að fara aðeins í gegnum ferilinn á þessu máli, kosningalögum í fyrsta lagi, sem auðvitað var heildarendurskoðun á kosningalögunum sem margir komu vissulega að, og svo þeim saumi sem hefur átt sér stað eftir það, hvort tveggja á kosningalögunum, og eins og ég benti á hér áðan þá var þeim breytt með lögum nr. 113/2021 í fyrsta skipti. Í því lagafrumvarpi kemur fram að sú samþykkt hafi verið á Alþingi 13. júní 2021 og þá þegar tekið gildi en fram kemur í lagasafninu að þetta hafi tekið gildi 16. júlí 2021 þannig að það er hreinlega misræmi í lagasafninu um gildistíma laganna og gildistöku laganna og umræddra ákvæða.
Þessu var svo aftur breytt í lok desember þegar kom í ljós að íbúakosningar sem voru fram undan gátu ekki farið fram samkvæmt þessum lögum, það hafði gleymst að taka tillit til þess að fram undan voru ýmiss konar íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaga og þess háttar sem hafa nú átt sér stað, held ég, að öllu leyti. Það gleymdist að gera ráð fyrir því.
En svo er líka áhugavert að sjá að við feril málsins á þinginu komu nokkuð margar breytingartillögur, það kom breytingartillaga frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þáverandi formaður, Jón Þór Ólafsson, þurfti í nafni nefndarinnar líka sjálfur að leggja fram breytingartillögur sem bornar voru hér upp og samþykktar. Það var ekki eins og þetta væri breytingartillaga sem hann vildi gera sem nefndin hefði ekki viljað gera heldur voru þetta breytingartillögur sem hann þurfti að leggja inn eftir að nefndarálit hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var komið inn ásamt breytingartillögum. Þá greinilega rak lagaskrifstofan, eða aðrir lögspekingar, augun í að það voru villur í því skjali sem Alþingi var þá þegar að fara að afgreiða.
En ekki er nóg með það að þarna eru þrjár breytingartillögur í rauninni frá meiri hluta hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar strax við 2. umr. heldur þurfti þáverandi formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mæta í 3. umr. með enn eina breytingartillöguna. Það bendir til þess að málið sjálft, frumvarpið sjálft, hafi einfaldlega ekki verið orðið nógu þroskað þegar það kom hingað til atkvæða í þingsal. Það gefur tilefni til að ræða almennt hvernig mál eru búin þegar þau koma hingað. Auðvitað er það þannig að þau eru oft ekki fullkomin og algerlega fullkláruð eða mistök geta auðvitað leynst í þeim, sérstaklega þegar um er að ræða heildarlöggjöf og miklar breytingar.
En það er, held ég, algjört grundvallaratriði að hlustað sé á okkur í stjórnarandstöðunni fyrst og fremst þegar við erum að benda á að það gangi ekki að skutla heildarendurskoðun á lögum inn á síðustu stundu fyrir þinglok. Það gengur alls ekki. Það liggur alveg ljóst fyrir. Svo var þó ekki með þetta, en ég segi bara: Almáttugur ef svo hefði verið líka, af því að við stöndum hér í dag, að nálgast miðjan marsmánuð, þegar ríkisstjórnarflokkarnir ætluðu að vera komnir með tæplega 100 mál inn í þingið til afgreiðslu fyrir vorið. Ég held að við séum komin með 40 mál frá ríkisstjórninni í hús. Og hvað þýðir það? Það þýðir auðvitað að það eru 50–60 mál á leiðinni sem nefndirnar eiga að klára og hluti þessara mála er heildarendurskoðun á grundvallarmálum.
Ég hef frá því að ég tók sæti á Alþingi komið hingað upp a.m.k. mánaðarlega og örugglega vikulega og ákallað hæstv. forseta þings og hæstv. ráðherra í ríkisstjórn um að vanda sig, að gefa Alþingi tækifæri til að vanda sig, til að vanda til verka. Það skiptir svo ótrúlega miklu máli af því að þetta eru lög sem verða að vera skýr, þau verða að vera gagnsæ þannig að almenningur sem á að fara að lögum, og ráðherrar sem eiga að fara að lögum, geti skilið lögin, þeir verða að geta kynnt sér þau. Það er grundvallaratriði í lagasetningu. Þau eiga að vera almenn og skýr þannig að fólk sem á að fara að lögunum skilji þau.
Þá komum við að öðru áhugamáli mínu sem er að þingmál lifi milli þinga. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir, m.a. af þingmönnum Samfylkingarinnar, til að koma þeirri breytingu í gegn að þingmál lifi milli þinga af því að það væri mikið heillaspor fyrir Alþingi Íslendinga. Í fyrsta lagi myndi þetta vanda mjög lagasetningu af því að þá væru ekki þessi handarbakavinnubrögð hér í lok haust- og vorþings. Þá fengju frumvörpin að þroskast áður en þau yrðu að lögum, við fengjum vandaðri vinnubrögð. Í öðru lagi myndi það spara alveg ótrúlegan tíma og orku vegna þess að þá værum við að tala um að það þyrfti ekki að byrja alltaf frá grunni á hverju hausti. Það þarf ekki að byrja á því að mæla fyrir sama málinu aftur hér í þingsal, sama málinu sem er óbreytt. Ég veit ekki annað en að það séu nokkur mál á dagskrá hér, stjórnarmál, sem eru flutt óbreytt frá síðasta þingi. Fjöldi mála sem við höfum verið með núna er óbreyttur frá síðasta þingi, jafnvel þrátt fyrir að þau hafi fengið mjög harða gagnrýni frá öllum umsagnaraðilum. Við þingmenn sem sitjum í fastanefndum Alþingis könnumst mjög vel við upphaf umsagnarorða sem hljóða svo: Umsögn þessi er samhljóða umsögn sem send var á síðasta og þarsíðasta þingi. Við sjáum að frumvarpið er óbreytt þrátt fyrir ábendingar okkar og teljum við því ekki ástæðu til að breyta umsögninni að öðru leyti en því að við munum breyta dagsetningunni í hausnum á henni. Hvaða virðing er þetta við tíma fólks sem sendir af þekkingu sinni umsögn inn til Alþingis, tíma alþingismanna sem vinna sömu málin aftur og aftur, tíma starfsfólks Alþingis, pappírinn, skógana, vinnu fólks við að endurprenta sama málið, þing eftir þing? Þetta er auðvitað alveg óhemjuvitlaust, herra forseti. Vönduð vinnubrögð og þingmál sem lifa á milli þinga eru eitthvað sem ég held að við ættum að vinna næst að.
Það er í þriðja lagi eitt sem mig langar að hafa orð á og var til umræðu í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þegar ég sat þar á síðasta kjörtímabili. Það var vegna þingmáls sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson flutti a.m.k. einu sinni, örugglega tvisvar, kannski þrisvar, ég veit það ekki, ég veit ekki hvað hann flutti það oft, óteljandi í minningunni, sem varðaði kosningaaldur. Við vinnslu þess máls í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd — þess máls sem við skulum muna að náði ekki að klárast út af svolitlu, það voru einhverjir stjórnarliðar sem vildu alls ekki leyfa því að klárast, vildu alls ekki að 16 ára gömul ungmenni fengju að greiða atkvæði, (Gripið fram í: Nafngreindu þau.) fengju að kjósa. Ég bara man það ekki, það var bara klofningur í ríkisstjórninni út af þessu. Ég var beðin um að nafngreina þá sem voru á móti. Í vinnslu þess máls var mikið rætt um kynningar til kjósenda, að dómsmálaráðuneytið, þá innanríkisráðuneytið, yrði að fara að taka það hlutverk sitt alvarlega að framkvæma fullnægjandi kynningar fyrir væntanlega kjósendur. Það virðist að einhverju leyti hafa síast inn þegar kemur að nýjum kjósendum sem vegna aldurs mega kjósa í fyrsta sinn en í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vorum við, og sú sem hér stendur, ekki síður að hugsa um nýja kjósendur sem höfðu flutt til landsins og fengu heimild til að kjósa, af því þegar farið er yfir tölfræði í þessum málum og hvernig þátttaka fólks af erlendum uppruna og fólks með íslenskan ríkisborgararétt, sem öðlast íslenskan ríkisborgararétt með lögum eða stjórnvaldsákvörðunum, er í kosningum þá kemur í ljós að hún er alls ekki nógu góð. Við berum ábyrgð á því og stjórnvöld bera ábyrgð á því að vanrækja þennan hóp, að kynna ekki nógu vel fyrir þessum hópi að hann megi ganga til kosninga af því að þetta eru grundvallarmannréttindi.
Ég man eftir því að fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar tók Reykjavíkurborg af skarið og sendi nýjum kjósendum kynningarbækling, bara velkomin í hóp þeirra sem mega kjósa, þú hefur kosningarrétt í sveitarfélaginu. Það varð allt vitlaust og var talið að þetta væri einhvers konar áróður. En þetta er sjálfsögð þjónusta frá þeim sem standa fyrir kosningum. Í þingkosningum er það auðvitað ríkið sem á að annast þetta. Dómsmálaráðuneytið framkvæmir kosningar og á að annast það að upplýsa kjósendur um rétt sinn. Það var heilmikið um þetta rætt og við lögðum sérstaka áherslu á þetta og gott ef við settum þetta ekki í nefndarálitið á þessum tíma. Ég náði nú ekki að rýna nefndarálitið þegar kosningalögin voru sett, þegar þessi heildarendurskoðun átti sér stað og við fengum ný heildarlög um kosningar þar sem við felldum út að hafa þetta í tveimur lagabálkum, annars vegar lögum um kosningar til sveitarstjórna og hins vegar lögum um kosningar til Alþingis, hafa þetta bara kosningalög, allt á sama stað. Mér láðist að skoða nefndarálitið þarna til að kanna hvort það hefði verið árétting í nefndaráliti til stjórnvalda að kynna, bæði fyrir ungum kjósendum sem voru að fá í fyrsta skipti kosningarrétt en líka til þeirra sem koma erlendis frá og öðlast kosningarétt, að þau megi kjósa.
Ég vil af þessu tilefni hvetja sveitarfélög hringinn í kringum landið til að huga að þessu núna. Það er ekki of seint. Við göngum til kosninga eftir rúmlega tvo mánuði, 14. maí, þannig að það er nægur tími til að búa til einblöðung; velkomin/n á kjörskrá, gaman að segja þér frá því að við göngum til kosninga í þínu nærumhverfi 14. maí. Þú hefur öðlast kosningarrétt, endilega nýttu þér þennan grundvallarrétt þinn, af því að við eigum ekki að gera lítið úr lýðræðinu, það skiptir svo miklu máli. Það skiptir öllu máli og við eigum að hvetja fólk til að ganga til kosninga.
Þær breytingar sem er verið að gera hér eru í 12 greinum, ýmiss konar breytingar sem nauðsynlegar eru til að breyta kosningalögum og lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka varðandi viðmiðunardag kjörskrár og fleira og nauðsynlegt að gera núna vegna þess að við göngum til kosninga í vor og er þörf áminning á að vanda til verka þegar við setjum lög á Alþingi.