kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni yfirferðina, vil kannski sérstaklega þakka fyrir að rifja upp þegar miðflokksmenn þriggja þingflokka komu hér í veg fyrir að kosningaaldur yrði lækkaður með málþófi um frumvarp við 3. umr., sem er fátítt en sýnir ákveðna örvilnan þeirra flokka sem standa frammi fyrir því að heimurinn er að breytast og næstu kynslóðir muni ekki kjósa jafn margt miðflokksfólk, hvort sem það er í Sjálfstæðisflokki eða Miðflokknum sjálfum, og þær fyrri. Það er margt sem hægt væri að ræða úr máli þingmannsins en mig langar kannski sérstaklega að fara yfir tímalínu málsins hér fyrir ári. Mælt var fyrir frumvarpinu 15. desember 2020, við tók umsagnarferli og að mér sýnist 22 nefndarfundir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Í lok maí voru tilbúin drög að breytingum sem nefndin gat mögulega náð saman um sem voru send í innri rýni hjá sérfræðingum, svo losnaði málið úr nefnd 8. júní. Þetta er alveg ofboðslega langt ferli. Samt tókst ekki betur til. Ég held að við verðum að segja það eftir á að ekki hafi tekist nógu vel til. Svo er þetta afgreitt í 2. umr. aðfaranótt 12. júní, 3. umr. aðfaranótt 13. júní, þannig að svigrúmið til að rýna málið milli umræðna, sem hefði auðvitað verið eðlilegt í ljósi þess hversu umfangsmiklar breytingarnar voru, var ekki neitt. Þetta, herra forseti, eru bara ekki vinnubrögð sem við eigum að temja okkur. (Forseti hringir.) Ég velti þess vegna fyrir mér, eins og ég nefndi við hv. þingkonu Þórunni Sveinbjarnardóttur, hvort við þurfum kannski að taka málið aftur (Forseti hringir.) í fangið og fela einhverri nefnd að skoða frekari úrbætur á lögunum.