152. löggjafarþing — 49. fundur,  9. mars 2022.

kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.

424. mál
[19:20]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim fyrir þessa ágætu ræðu. Hún vakti athygli á ákveðnum annmörkum á kosningalögum, kannski ekki beinlínis annmörkum á þessu tiltekna frumvarpi sem hér er til umræðu en annmörkum á heildarlögunum sem þarf einmitt að halda áfram að endurskoða með reglulegu millibili. Mig langar svolítið að halda áfram á sömu nótum og víkja aðeins að einu efnisatriði, sérstaklega með hliðsjón af því sem hv. þingmaður vakti athygli á varðandi reglugerðir og reglugerðarvald ráðherra þegar kemur að framkvæmd kosninga.

Í 31. gr. kosningalaga segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Þegar auglýst hefur verið að gerð kjörskrár sé lokið, sbr. 30. gr., er þeim stjórnmálasamtökum sem bjóða fram lista við kosningar, og frambjóðendum í forsetakjöri, heimilt að óska eftir rafrænum aðgangi að kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Aðgangur skal veittur án endurgjalds, svo og önnur gögn sem kunna að verða tilgreind í reglugerð.“

Í nýliðnum þingkosningum og í aðdraganda þeirra þá dróst í margar vikur að veita stjórnmálasamtökum aðgang að kjörskrá. Ekki voru gefnar miklar skýringar á þessu og þurftu stjórnmálasamtök jafnvel að fara að kaupa gögn frá já.is vegna þess að þessum reglum var ekki fylgt almennilega. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það var sem þetta strandaði á en þetta vekur mann kannski til umhugsunar um hvort ekki þurfi að skoða þetta ákvæði eitthvað betur og kannski skerpa á þessari reglu um að stjórnmálasamtök eigi rétt á aðgangi að kjörskrá. Það væri gaman að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þetta.