kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir svarið. Hann kom inn á að sveitarfélög ættu að fá aðgang að kjörskrá. Ég er mjög sammála því og það ætti að gerast sem fyrst, enda er mjög mikilvægt að upplýsingar liggi fyrir varðandi kosningar og að almenningur sé nógu vel upplýstur um hvernig kosningar eiga að fara fram, hvort fólk sé með kosningarrétt o.s.frv., allt sem hv. þingmaður kom sjálfur inn á. Aðgangurinn að kjörskrá er rosalega mikilvægur og þetta þarf að gerast sem fyrst. Ég legg því til að 31. gr. sé þrengd frekar mikið þannig að enginn vafi leiki á því hverjir eiga rétt á aðgangi að kjörskránni og hvenær af því að mér finnst núverandi 31. gr. vera svolítið rúm, svolítið opin til túlkunar. Þegar eitthvert lagaákvæði er frekar rúmt þá er hægt að vera í vafa um merkingu þess og því er þá kannski ekki rétt beitt. Ég held, eins og ég sagði áðan, að fullt tilefni sé til að endurskoða 31. gr. og þrengja hana aðeins og veita sveitarfélögum aðgang að kjörskrá sem fyrst af því að kosningarnar eru, eins og ég sagði, eftir rúma 60 daga. Þetta þarf allt að liggja fyrir a.m.k. mánuði fyrir kosningar.