152. löggjafarþing — 51. fundur, 14. mars 2022.
staðfesting kosningar.
Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Ágústu Ágústsdóttur sem 3. varaþingmanns Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengi hennar og mælir nefndin einróma með staðfestingu kosningar Ágústu Ágústsdóttur.