152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

Mannabreytingar í nefndum.

[15:05]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Samfylkingarinnar um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Kristrún Frostadóttir taki sæti sem varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Þórunnar Sveinbjarnardóttur og að Oddný G. Harðardóttir taki sæti sem varamaður í atvinnuveganefnd í stað Helgu Völu Helgadóttur. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.