152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þegar þingið afgreiðir þingsályktunartillögur skiptir máli að við fylgjum því eftir að þeim sé framfylgt. Maður myndi ætla að ríkisstjórnin sinnti þeim verkefnum sem þingið afhendir henni, enda erum við lýðræði með þingbundinni stjórn. Hér má minnast á t.d. þingsályktunartillögu Pírata um aðgengi að stafrænum smiðjum sem var samþykkt í júní 2018, það er ekkert búið að gerast þar síðan þá, eða aðild að Geimvísindastofnun Evrópu sem var samþykkt 13. október 2016, ekkert enn þá, eða tölvutækt sniðmát þingskjala, líka í júní 2016, ekkert þar. Maður verður að íhuga hver tilgangur þess er að vera að samþykkja þingsályktunartillögur þegar ríkisstjórnin gerir síðan ekkert í málunum. Hvernig eigum við að hugsa um það þegar ríkisstjórnin segir bara: Já, þingsályktun sem var samþykkt af þinginu, (Forseti hringir.) við ætlum bara að líta svo á að við þurfum ekki að framfylgja henni, (Forseti hringir.) varðandi t.d. aðildarumsókn að ESB? Það virkar ekki þannig. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin verður þá að koma hingað og segja að hún ætli ekki að gera þetta og leggja af þær þingsályktunartillögur (Forseti hringir.) ef hún hefur pólitískt þor til þess.