152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:15]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með þeim sem gagnrýnt hafa það mynstur sem er að teiknast hérna upp, að það virðist litlu máli skipta hvaða samþykktir eiga sér stað hérna innan þessa þingsalar, hversu mikill meiri hlutinn — ekki að það eigi að skipta máli svo sem, en það virðist eiginlega gilda einu hvort um er að ræða beiðnir um skýrslur til ráðherra, samþykktar þingsályktunartillögur um einhver verkefni sem ráðherra er falið fyrir hönd þingsins að framkvæma í þágu almennings, aldraðra í því tilfelli sem hér er rætt, eða hvort um er að ræða það einfalda verkefni að framfylgja lögum. Ég sé eiginlega fyrir mér að við verðum kannski að færa þessi verkefni hingað inn í þingsal og tala vel og tala lengi í þeim málum sem þetta snýst um, vegna þess að það virðist ekkert gerast eftir að þing hefur sagt sitt orð með samþykkt mála og vísað þeim til framkvæmdarvaldsins. Þau hafa einfaldlega tilhneigingu til að andast þar.

(Gripið fram í: Heyr, heyr.)