152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson nefndi hér dæmi um eina af rosalega mörgum tillögum sem ekki hefur verið farið eftir, tillögum sem Alþingi hefur samþykkt, yfirleitt með öllum greiddum atkvæðum í kjölfar þinglokasamninga þar sem meiri hlutinn lætur sig hafa það að hleypa í gegn einhverjum meinlausum málum frá stjórnarandstöðunni, svo mikil er lýðræðisástin. Það eru ekki gæði málanna. Það er ekki stuðningur við þau. Nei, þetta er einhver hausatalning. Hver flokkur fær eitt mál, max tvö mál við þinglok sem eru samþykkt og síðan ekkert gert með. Ég held við þurfum að taka þetta til skoðunar þegar kemur að næstu þinglokasamningum. Hér hefur verið nefnd þessi tillaga Flokks fólksins. Hvað með aðgerðir vegna rakaskemmda sem átti að skila einhverri niðurstöðu um í júní á síðasta ári eftir að tillaga Halldóru Mogensen hafði verið samþykkt hér í þingsal? Það bólar ekki á neinu þar. Svo eru tvær tillögur frá Viðreisn og Pírötum líka (Forseti hringir.) sem samþykktar voru síðasta vor sem eru komnar á tíma núna fyrir þinglok á þessu ári. (Forseti hringir.) Ég held að við ættum að taka það dálítið alvarlega ef ekki er komin nein útkoma úr þeim tillögum áður en við setjumst niður við þinglokasamninga (Forseti hringir.) af því að það virðist bara ekki vera neitt að marka þá.