152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:18]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það eru kjarasamningar fram undan þar sem stjórnvöld munu gegna mjög mikilvægu hlutverki. Það er mjög alvarlegt að núna, þegar kjarasamningar eru að hefjast, þá er ríkisstjórnin enn ekki búin að standa við loforð sem gefin voru við undirritun lífskjarasamningsins 2019. Eitt af þeim loforðum lýtur að réttarbótum fyrir leigjendur, breytingum á húsaleigulögum, ákveðnum vörnum t.d. gegn skyndilegri hækkun leigufjárhæðar. Þetta er ofboðslega mikilvægt núna þegar það er útlit fyrir að leiguverð fari að rjúka upp og elta fasteignaverð. Annað lýtur t.d. að launaþjófnaði. Það hefur ekkert verið gert. Það hefur ekkert komið hérna inn í þingið til að taka á því. Þessu var lofað við gerð lífskjarasamningsins. Húsaleigulagafrumvarpið var á þingmálaskrá og átti að koma hérna fram 31. janúar, ef ég man rétt. Það bólar ekkert á því. Þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt, bara upp á félagslegan stöðugleika og kjaraviðræðurnar sem fram undan eru, að staðið verði við þetta og þetta komi fram sem fyrst svo þingið hafi líka tíma til að ræða þetta almennilega og tryggja að þetta verði gert almennilega.