um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það er að koma fram ákveðið mynstur hjá ríkisstjórninni. Við erum búin að fjalla hér um mál sem varða fyrirtæki og koma þeim í gegn í Covid og það hefur gengið vel. Og það er bara flott. En þegar á að fara að forgangsraða gagnvart fólkinu, öldruðum, lögfestingu samningsins um málefni fatlaðs fólks, fötluðum, eða að skila umsóknum til allsherjar- og menntamálanefndar varðandi flóttamenn — við sjáum alveg hvar mynstrið liggur, hverjir eru þóknanlegir ríkisstjórninni og hverjir ekki. Það er greinilega alveg á hreinu að aldraðir eru það ekki, öryrkjar eru það ekki. Það virðist vera að það eina sem þessi ríkisstjórn getur komið í gegn og gert fljótt og vel sé ef það varðar fyrirtækin, ekki fólkið.