152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hefur komið fram hér í dag. Meiri hluti á þingi vill mögulega koma til móts við þarfir almennings í landinu. Þó að ráðherrar í ríkisstjórn séu verkstola þegar kemur að þessum nauðsynlegu verkefnum núna þegar verðbólgan er rúmlega 6%, þá held ég samt sem áður að innan stjórnarflokkanna leynist jafnvel einstaklingar, ég vil leyfa mér að trúa því, sem vilja hjálpa fólkinu í landinu. Ég skora á þingmenn að fylgja stjórnarskránni og fylgja eigin sannfæringu í þessum málum. Styðjum við góð verk, styðjum jafnvel við tillögur stjórnarandstöðu þegar kemur að nauðsynlegri aðstoð við almenning í landinu.