um fundarstjórn.
Forseti. Mér finnst þetta dálítið mikilvæg umræða því talað hefur verið um pólitískan ómöguleika í tengslum við þessa umræðu um þingsályktun sem þingið samþykkir, svo kemur ný ríkisstjórn sem er bara ekki sammála þessu og vill bara ekki fara eftir því sem þingið segir. Rétta niðurstaðan þá er að sjálfsögðu að ríkisstjórnin komi með tillögu um að fella brott þá þingsályktun ellegar bara gera það sem þingið segir. Það er ekkert flókið.
Mér finnst dæmið um stafrænu smiðjurnar, aðild að stafrænum smiðjum, sem ég og hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir lögðum fram, vera mjög gott dæmi því að við vorum hófsöm í okkar aðkomu að því máli. Þingið bætti við, gerði kröfurnar meiri, um meiri aðgang að stafrænum smiðjum. Allir þingmenn og ráðherrar samþykktu þá þingsályktunartillögu, meira en við báðum um. Við báðum um lágmarkið svona til að byrja með. Nei, það var gefið í og samt er ekki búið að gera neitt. Það er ekki bara þannig að mál séu að deyja í nefnd, þau eru líka að deyja í ríkisstjórn og það er óásættanlegt.