um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni og fleirum sem hafa rætt hér um efnahagsástandið. Hvar eru þingmálin sem snerta heimilin í landinu í þessum efnahagsaðstæðum? Svíar voru rétt í þessu að kynna mótvægisaðgerð fyrir heimilin sem er ígildi 8 milljarða kr. pakka ef við setjum það í samhengi við tekjur íslensku þjóðarinnar. Ég auglýsi einfaldlega eftir þingmáli sem varðar stöðu almennings. Af hverju er ekki tekið mið af stöðunni í landinu í dag? Hvaða verðbólgumælingu er hæstv. ríkisstjórn að bíða eftir til að koma sér í gang? Eru það 7%, 8%, 9%? Í hvers konar umhverfi þarf að líta aðeins upp og taka mið af stöðunni í landinu í dag? Það hafa heyrst frá ráðherrum innan þessarar ríkisstjórnar alls konar hugmyndir um stuðning við heimilin. Það mætti halda að viðkomandi aðilar sitji ekki í hæstv. ríkisstjórn og hafi ekki vald til að leggja fram þingmál og koma í gegn aðgerðum. Þetta er ekkert annað en bara leikur að orðum. Hér þarf að koma eitthvert mál inn í þingið fyrir almenning í landinu.