um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Fyrir mig sem nýjan þingmann leiðir þetta hugann að tímasetningu kosninga. Er það ekki bara alveg út í hött að halda kosningar svona seint, koma inn í þing rétt fyrir áramót og reyna að berja saman fjárlög til að klára það nú á löglegum tíma og vera eftir á með alla skapaða hluti?
Hér er búið að nefna að Svíar séu farnir að grípa til aðgerða. Þeir eru m.a. að skoða álögur á bensín, sem hægt væri að fara í hér skjótt og vel. Það eru því mörg úrræði sem hægt er að grípa til núna sem myndu hjálpa fólki. Ég nefndi það hér í pontu um daginn að það væri hægt að fara inn í tilfærslukerfið og spýta inn í bætur til illa settra heimila. Það er bara eitthvað sem við þurfum að gera ekki seinna en strax.