152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:28]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Við tölum hérna um virðingu þingsins og við sjáum að traust almennings til þingsins og opinberra stofnana hefur verið að rísa aðeins aftur en er alls ekki á þeim stað sem við myndum vilja hafa það. Setjum þetta í samhengi. Þegar þingsályktunartillaga eða þingmál er samþykkt hérna í þingsal, tökum t.d. bara tillögu um sálfræðiþjónustu sem Viðreisn var með og var samþykkt hérna einróma á þingi, að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Ég hef talað við fólk sem er búið að upplifa gífurlega erfiðleika í lífinu, hefur ekki efni á að fara til sálfræðings, sem er annars þeirra björg, og sem gladdist svo ofboðslega mikið, fagnaði þeirri tilhugsun að það gæti komist til sálfræðings í fyrsta skipti. Og svo leyfir hæstv. fjármálaráðherra sér að fara í viðtal eftir þetta og segja að honum detti sko alls ekki í hug að greiða fyrir þetta. Ég þekki nokkra einstaklinga sem grétu, í alvörunni, bara grétu þegar þessar fréttir komu. (Forseti hringir.) Þetta er á okkar ábyrgð. Af hverju í ósköpunum erum við að samþykkja einhver þingmál hér í þessum sal sem framkvæmdarvaldið (Forseti hringir.) ber enga virðingu fyrir, enga? Og af hverju erum við að biðja þjóðina um að bera virðingu fyrir okkur þegar við berum enga virðingu fyrir henni? (Forseti hringir.) Þetta er ekki hægt. Þetta þarf að laga.