152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:30]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Já, það er eitt að samþykkja þingsályktanir og fara ekki eftir þeim, það er annað að samþykkja þingsályktanir og fjármagna þær ekki. Það er eitt að svara ekki fyrirspurnum — ég sendi t.d. eina til hæstv. dómsmálaráðherra og ráðuneyti hans bað ekki einu sinni um frest til að fresta frestinum en svarið átti að koma í síðustu viku. Við verðum að fara að sýna hér á hinu háa Alþingi að við getum unnið saman þvert á flokka með því að sýna hvert öðru virðingu. Það er eitt að vera í meiri hluta, annað er að kunna að vera í meiri hluta og kunna að vinna með minni hlutanum í því að gera það sem fólkið í landinu kaus okkur öll til að gera.