um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Af því að ég kom hér áðan og talaði um úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar þegar kemur að því að mæta fólkinu í landinu vegna erfiðs efnahagsástands þá finn ég mig knúna til að koma upp til að taka undir með þeim sem eru að ræða um störf þingsins og vinnubrögð. Þegar þingsályktunartillögur eru samþykktar af Alþingi þá virða ráðherrar í þessari ríkisstjórn það að vettugi. Þegar frumvörp eru samþykkt af Alþingi og gerð að lögum leyfa ráðherrar í ríkisstjórn sér að virða það líka að vettugi. Hvaða skilaboð eru það sem verið er að senda almenningi, vinnuveitendum okkar, að ráðherrar geti bara gert nákvæmlega það sem þeim sýnist óháð því hvað Alþingi fyrirskipar, æðsta lýðræðisstofnunin? (Forseti hringir.) Eins og þeir þurfi ekki að fara eftir því sem hér er samþykkt.