um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég kem hingað upp vegna orða hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar sem veltir fyrir sér þeim ómöguleika sem kunni að vera uppi þegar þingsályktunartillögur eru samþykktar og ríkisstjórnin er beinlínis á móti þeim og benti á að þau geti þá afgreitt þær út af borðinu í atkvæðagreiðslu. Ég tel að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu. Kenningin um hinn pólitíska ómöguleika var sett fram fyrir sjö árum síðan af hæstv. fjármálaráðherra. Ég held að hún hafi verið afsönnuð þegar Vinstri græn viku grundvallarstefnu sinni í utanríkismálum til hliðar og gengu inn í ríkisstjórn og tóku þátt í sömu þjóðaröryggisstefnu og þau höfðu áður andmælt. Þannig að við skulum ekki hafa áhyggjur af því. Hér er þingið búið að samþykkja þingsályktunartillögur, margar í gegnum tíðina, og ríkisstjórn ber einfaldlega að fara eftir þeim. Allar kenningar um pólitískan ómöguleika eru úreltar.