152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:34]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í stjórnarsáttmálanum getum við lesið um fögur fyrirheit um að bæta aðstæður vinnumarkaðarins og reyna að skapa hér umhverfi sem getur gert það að verkum að samningur taki við af samningi. En ég get ekki séð að í stöðunni eins og hún lítur út núna sé verið að reyna að lyfta litla fingri til að reyna skapa þær aðstæður. Hér er allt á fleygiferð. Við erum með verðbólgu sem við höfum ekki séð núna í heilan áratug. Við erum með bensín á fleygiferð upp, við erum með matarverð á fleygiferð upp, við erum með húsnæðiskostnað á fleygiferð upp. Hér sitjum við bara róleg, bara pollróleg í okkar stól, og það gerist ekkert. Verkalýðshreyfingin sýnir ekki neinn skilning á þessari stöðu og hún mun ekki gera það. Hún er að brýna tennurnar núna og það verður glefsað fast í framhaldinu.