um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að biðja forseta að taka lífsmörkin á ríkisstjórninni. Það er eins og það renni ekki blóðið á ráðherrabekknum. Fólk er reyndar mjög duglegt að skoða símana sína. Við erum náttúrlega flest frekar dugleg hér í salnum að gera það. Hvar er metnaðurinn? Hvar er pólitíkin í þessari ríkisstjórn. Hvernig á að setja þau verkefni á dagskrá sem mestu máli skipta? Það er lífskjarakreppa í allri Evrópu. Það eru allar ríkisstjórnir að grípa til viðeigandi aðgerða. Hér sitja menn og dúlla sér í símanum sínum, bíða þess að kjarasamningar losni. Og hvað ætla menn að gera þá? Hvenær ætlar blóðið að renna í ríkisstjórnarlíkama Katrínar Jakobsdóttur? Hvenær hættir þetta huggulega teboð og fólk fer að beita sér með pólitískum hætti?