um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þar sem ég er varaþingmaður og starfandi sálfræðingur þegar ég er ekki hér, þá trúði ég því eiginlega ekki sem gerðist hér á síðasta kjörtímabili og því sem enn er að gerast, að ekki sé verið að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Ég get varla orða bundist. Ég trúi eiginlega ekki, þar sem ég kem hér inn sem varaþingmaður, hvernig þetta virkar — eða virkar ekki, ef þið viljið segja það þannig. Mig langar svolítið að tala fyrir hönd almennings, þar sem ég sit ekki alltaf sem alþingismaður, og segja að traust okkar á Alþingi og traust til fólksins sem situr í ríkisstjórn er ekki upp á marga fiska. Þannig að það að eitthvað sé samþykkt með lögum en fái síðan ekki framgang eða sé ekki fjármagnað er eiginlega ótrúlegt, lyginni líkast. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)