um fundarstjórn.
Herra forseti. Það fer vel á því að koma í ræðustól á eftir Evu Sjöfn Helgadóttur, hv. varaþingmanni, vegna þess að hún lagði fram fyrirspurn fyrr í vetur um aðgerðaáætlun stjórnvalda frá árinu 2018 til að fækka sjálfsvígum. Hvað kom fram í svarinu? 54 aðgerðir eru í áætluninni, fimm þeirra hefur verið hrint í framkvæmd eða lokið. Þannig að jú, við megum alveg kvarta yfir því hvernig ríkisstjórnin fer með þær tillögur sem við fáum samþykktar hér í sal en þau eru nú ekkert mikið skárri með ýmis af sínum eigin málum, þjóðþrifamálum eins og að fækka sjálfsvígum, á sama tíma og andlegir erfiðleikar hafa sennilega aldrei verið meiri.
Sjálfur lagði ég nýlega fram fyrirspurnir um hvernig gengi að framkvæma áætlun sem samþykkt var á Alþingi um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, sem er annar vágestur sem hefur aldeilis farið að knýja fastar á dyr á síðustu árum. Mig grunar að svörin verði svipuð þar; mikið tal, lítið gert.