152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

orku- og loftslagsmál.

[15:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Það eru mér mikil vonbrigði ef þingflokkur Pírata ætlar að tala hér í fyrirsögnum og tala gegn aðgerðum okkar í loftslagsmálum. Ef einhver trúir því í eina sekúndu að heimurinn sé að fara með einhverjum þeim hætti sem hv. þingmaður vísaði til, ef einhver trúir því í eina sekúndu, þá hvet ég hv. þingmenn og alla aðra sem gera það til að fara á internetið og skoða hvað er að gerast í heiminum. Það sem er að gerast í heiminum er að við erum að berjast gegn loftslagsvánni og það gerum við með því að fara úr jarðefnaeldsneyti yfir í græna orku. Það er það sem við erum að gera ásamt ýmsu öðru. Það er án nokkurs vafa langstærsta aðgerðin. Umræðan fór mjög vel af stað og málefnalega og þetta er stórt verkefni til að vinna úr. Svo er það kannski bara þannig, virðulegi forseti, að það eru hv. þingmenn sem eru ekki tilbúnir til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn loftslagsvánni þegar til stykkisins kemur. Ef menn telja að eitthvað sé rangt í þessari skýrslu og öðrum eiga menn auðvitað bara að koma með það fram. Þetta er gert eins gagnsætt og mögulegt er. Þetta er strax sett á netið, hv. þingmenn fá aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þeir vilja. Ef það er eitthvað sem menn telja að betur megi fara þá skulu menn bara koma með málefnalegar athugasemdir við það. En við komumst ekkert áfram í þessum málum eingöngu með stóryrðum og fyrirsögnum.