152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

orku- og loftslagsmál.

[15:44]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Grænbókin er skrifuð af hagsmunaaðilum stóriðjunnar í Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins. Við lifum á tímum þar sem hætta steðjar að mörgum skilyrðum þess sem gerir það lífvænlegt að lifa á þessari plánetu okkar sem hýsir okkur, sem fæðir okkur. Að miklu leyti er vandinn að við búum við efnahagskerfi sem grundvallast á hugmyndafræði um línulegan, óendanlegan hagvöxt á plánetu sem hefur ekki yfir óendanlegum auðlindum að ráða. Staðreyndin er sú að við erum langstærsti rafmagnsframleiðandi heims miðað við fólksfjölda, langstærsti. Við framleiðum tvisvar sinnum meira á hvern einstakling en Norðmenn sem eru í öðru sæti. 80% af þessari orku fer í álver, kísilver og gagnaver. Þetta snýst ekkert um að við þurfum meiri orku. Þetta snýst um hvernig við forgangsröðum. Hvernig þjónar þessi forgangsröðun núna orkuskiptunum, hæstv. ráðherra? Við þurfum ekki að virkja meira en við þurfum að forgangsraða betur (Forseti hringir.) í þágu náttúrunnar, í þágu framtíðarkynslóða en ekki í þágu skammtímagróða (Forseti hringir.) og hagvaxtar. Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera annað en að botnvirkja Ísland í þágu stóriðjunnar? Það er spurningin mín. Hvað ætlar hann að gera?