orku- og loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Þessi grænbók er ekki í þágu stóriðjunnar og ef hv. þingmaður hefur kynnt sér málið þá snýst þetta um það að stórum hluta hvað þarf mikla orku í orkuskiptin sem við förum í. Ég held að það skipti máli að menn tali skýrt og ég þakka hv. þingmanni og Pírata fyrir að tala gegn hagvexti. Þá liggur það bara fyrir. Hér er einn þingflokkur sem er á móti hagvexti. Það eru hræðilegar fréttir fyrir þá sem þurfa á t.d. ríkisútgjöldum að halda. Þá er ég að tala um öryrkja, þá sem þurfa á heilbrigðiskerfinu að halda, skólunum og öðru slíku því að hv. þingmaður er að segja við þetta fólk: Við ætlum að taka niður lífskjör í landinu, við ætlum að taka niður opinbera þjónustu. Það er það sem hv. þingmaður er að segja (Gripið fram í.) og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson er mjög ánægður með það. Við Íslendingar fórum í orkuskipti á undan öllum öðrum (HallM: … hvað ætlar þú að gera annað …?) og við getum verið afskaplega stolt af því og það gerði ekki bara gott fyrir umhverfið. Það gerði ekki bara gott fyrir loftslagið. Það gerðu líka gott fyrir efnahagslífið og jók samkeppnisforskot okkar á þessum sviðum. Við erum núna að fara í þá vegferð, (Forseti hringir.) að vísu eru aðilar sem ætla ekki í þá vegferð og það er þingflokkur Pírata, að fara í þriðju orkuskiptin (Forseti hringir.) og það er gott fyrir loftslagið og það er gott fyrir okkur Íslendinga.