152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

börn á biðlistum.

[15:52]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég ætla að biðja hæstv. ráðherra um að vera ekki að leggja mér orð í munn varðandi vanfjármögnun Barnahúss sérstaklega, þ.e. að ríkisstjórnin hafi ekki aukið fjármuni til þess, auðvitað hefur hún gert það. En það breytir því ekki að forstjóri Barna- og fjölskyldustofu hefur verið alveg skýr með það að Barnahús sé sprungið. Ferlar og fundir og blaðamannafundir hjálpa ekki börnum sem eru komin út í horn, börnum á biðlistum.

Við vorum að tala um Ráðgjafar- og greiningarstöð og hæstv. ráðherra segir að fjármagn hafi verið aukið þangað. En ég ætla bara að leyfa mér að vitna í umsögn frá umboðsmanni barna, sem við hljótum að taka mark á:

„Markmiðum um að bæta snemmtækan stuðning verður ekki náð án þess að biðlistum verði útrýmt en slíkt átak krefst aukinna fjárveitinga til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.“

Þetta sagði umboðsmaður barna í fyrra og hún notaði orðið ámælisvert um skort á fullnægjandi fjármögnun stofnunarinnar. Hún benti á að eitthvert 80 milljóna einskiptisframlag væri ekki nándar nóg til að taka á þessu. Hvað gerði svo ríkisstjórnin? Jú, samkvæmt fjárlögum ársins 2022 lækka beinlínis framlög til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, (Forseti hringir.) bæði núna í ár og samkvæmt þeim römmum sem unnið er eftir á næstu árum. (Forseti hringir.) Ég ætla að biðla til hæstv. barnamálaráðherra að koma hingað upp og gefa loforð um að hann muni standa undir nafni sem barnamálaráðherra, (Forseti hringir.) berja í borðið á ríkisstjórnarfundi og sjá til þess að horfið verði frá þessari fjársveltistefnu gagnvart nauðsynlegri þjónustu við börn.