152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

börn á biðlistum.

[15:54]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Það er algjörlega ljóst að til þess að bregðast við í málefnum barna þá þarf aukið fjármagn. Það er hins vegar svo að það þarf fleiri þætti þar til. Þar nefndi ég sérstaklega Ráðgjafar- og greiningarstöðina vegna þess að þar höfum við verið að setja fjármagn sem ekki hefur nýst, m.a. vegna þess að það er samtalsleysi á milli kerfa. Það er óskipulag á milli kerfa. Það eru ekki skýrir ferlar, fólk er að vinna á mörgum stöðum. Þetta ætlum við að taka saman núna og vinna á milli ráðherra. Eins og ég sagði vorum við, ég og heilbrigðisráðherra, á tveggja tíma vinnufundi fyrir helgina þar sem við vorum að móta þetta og ég hef átt samtöl við félagsmálaráðherra líka og við ætlum að taka þennan þunga enda. Það er algerlega rammað inn í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar að við ætlum að gera það. Við erum að vinna eftir ákveðnu skipulagi sem var að byrja á grunninum, byrja á farsældarlöggjöfinni og innleiða hana og taka síðan þunga endann. Síðan þurfum við að endurskoða öll úrræði vegna þess að það er líka þannig að við eigum að geta notast við hagkvæmari úrræði fyrr til að lenda ekki í þessum þunga enda síðar meir og sú vinna er í gangi samhliða. Við ætlum okkur að taka á þessu og ég skal lofa hv. þingmanni því að ég mun gera allt sem ég get til þess. (JPJ: Ætlið þið að lækka framlögin?)