152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

geðheilbrigðismál.

[15:58]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir að bregða upp þeirri sviðsmynd sem við okkur blasir. Það er víða herjað og að steðjar vandi. Þegar kemur að geðheilbrigðismálum þá er auðvelt að draga þá ályktun að í gegnum heimsfaraldur hafi í þeim efnum bætt í. Við höfum brugðist við með sérstökum vöktunarhópum á því sviði. Hv. þingmaður kemur inn á að það væri þjóðráð að skipa starfshóp til að taka svolítið utan um þessa mynd og hver þróunin hefur verið. Meðal annars á grundvelli þessarar vöktunar og skýrslugjafar vöktunarhópanna, bæði í heilbrigðisráðuneytinu og í félagsmálaráðuneytinu og eftirlits á vegum embættis landlæknis, þá hefur verið virkjaður hópur sem er að vinna grunn að geðheilbrigðisstefnu sem m.a. byggir á niðurstöðum af geðheilbrigðisþingi sem forveri minn stóð hér að ásamt fjöldamörgu góðu fólki. Í kjölfarið er þessi hópur, mjög víðtækur hópur, að vinna að aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem fylgir þessari stefnu sem er að sama skapi í takt við heilbrigðisstefnu til 2030. Þannig að já, svarið er alveg örugglega já. Þetta er auðvitað það sem við þurfum að fara af krafti í, ekki bara vegna þess að þessi vandi hafi aukist í gegnum faraldurinn (Forseti hringir.) heldur vegna þess að við hefðum auðvitað átt að vera búin að opna á aðgerðir gegn þessum vanda.