geðheilbrigðismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. En ég er að tala um dálítið annan hlut. Ég er að tala um að fara í dýptina á þessu og greina það sem ekki hefur áður verið greint. Ég hef spurt marga, bæði sálfræðinga og geðlækna: Hver er skýringin á þessu undarlega, séríslenska geðheilbrigðisvandamáli? Það hefur enginn komið með haldbær svör. Ég hef engan heyrt koma með trúverðugt svar. Sumir segja: Þetta eru samfélagsmiðlarnir, maður, skilurðu það ekki? Þetta er skammdegið eða eitthvað annað. Ég er að tala um að fara í alvarlega, vísindalega greiningu á hvað veldur þessu. Hvers vegna er staðan hér svona miklu alvarlegri en nokkurs staðar annars staðar og hvað gerum við? Þetta er ekki bara spurningin um hvað hendir mann heldur líka hvernig maður bregst við því sem hendir mann. Þannig að ég bið um djúpa, víðtæka rannsóknarskýrslu á nákvæmlega þessu.