152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja og veiðigjöld.

[16:09]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það er alltaf svolítið gaman að vera hérna þegar menn verða svekktir og mér finnst eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson hafi orðið svekktur. Þetta var býsna skýrt og öflugt svar hjá viðskiptaráðherranum vegna þess að það er alveg skýrt … [Hlátur í þingsal. Heyrið þið hvernig liðið lætur, formaður Viðreisnar enn og aftur, eins ómálefnaleg og hún er nú. (Gripið fram í: Jesús.) — Já, ég vil bara koma þessu á framfæri hér, ég vil bara gera það.

En það sem ég vildi segja … (Gripið fram í.) Má ég tala? Enn og aftur byrjar formaður Viðreisnar, hún ræður ekki við sig. Það sem ég vildi segja hins vegar: Já, við munum beita okkur. Við erum í stjórnmálum til að hafa áhrif og það gerðum við sannarlega á síðasta kjörtímabili og munum halda áfram að gera. Það sem ég held að sé að gerast hjá Viðreisn — hún er einfaldlega stressuð. Það er verið að taka forystu í málaflokkum sem skipta þjóðina máli, í sjávarútvegi. (Forseti hringir.) Ég minni á það að hv. formaður Viðreisnar (Forseti hringir.) var sjávarútvegsráðherra. Hvað gerði hún? Ekkert. Ekkert.